Þuríður Jónsdóttir - staðartónskáld Sumartónleika í Skálholti
Þuríður Jónsdóttir skrifar jafnt sinfónísk verk sem kammerverk af ýmsum toga og liggur þar leið hennar um nýjan hljóðheim. Sum verka hennar eru studd rafhljóðum, eða margmiðlun, önnur gera ósjaldan tilkall til leikrænna tilburða, náttúruhljóða eða þátttöku áheyrenda.
Meðal helstu verka Þuríðar sem sýna einstakan og fjölbreyttan hljóðheim hennar má nefna flautukonsertinn Flutter sem saminn var fyrir ítalska flautusnillinginn Mario Caroli, en skordýrahljóð leika þar kontrapunkt við hljómsveitina, Flow and Fusion fyrir stóra umbreytta hljómsveit, Cylinder 49 fyrir kammerhljómsveit og kór ásamt gamalli upptöku af íslenskri stemmu, INNI – musica da camera fyrir barrokkfiðlu og hljóðvoðir ungabarns, 48 Myndir af tunglinu fyrir einleiksselló ásamt upptökum frá hálendi Íslands og harmonikkukonsertinn Installation Around a Heart sem saminn var fyrir hinn þekkta norska harmonikuleikara Geir Draugsvoll og Caput. Þuríður hefur einnig unnið margmiðlunarverkin Cock’s Egg, Seal Maiden, óperuna Hafurinn hallarfrúin og Lusus Naturae í samvinnu við Ólöfu Nordal myndlistarkonu og Gunnar Karlsson myndlistarmann og teiknimyndaleikstjóra. Þuríður nam þverflautuleik og tónsmíðar við Tónlistarskólann í Reykjavík og síðar við Konservatoríið í Bologna á Ítalíu þar sem hún lauk diplómagráðu í flautuleik, tónsmíðum og raftónlist. Einnig hefur hún sótt námskeið hjá Franco Donatoni hjá Accademia Chigiana í Siena á Ítalíu og hjá Alessandro Solbiati hjá Accademia di Novara á Ítalíu. Eftir áralanga dvöl á Ítalíu býr Þuríður núna og starfar að list sinni og við tónlistarkennslu í Reykjavík. Verk eftir Þuríði hafa verið pöntuð og flutt jafnt af íslenskum og erlendum hljóðfærahópunum og stofnunum á borð við Los Angeles Philharmonic Association, franska ríkisútvarpið, norður-þýska útvarpið, vestur-þýska útvarpið auk þess íslenska, Caput, Ensemble Adapter, FontanaMix and Curious Chamber Players. Þau eru flutt á hátíðum eins og útvarpshátíðinni Présences í París, November Music, Klang, á Norrænum músíkdögum, ISCM og New Directions. Verk Þuríðar hafa verið tilnefnd til Íslensku Tónlistarverðlaunanna og til Tónskáldaverðlauna Norðurlandaráðs 2006, 2010 og 2012. Hljómsveitarverk Þuríðar Flow and Fusion var valið í hóp tíu áhugaverðustuverkanna á alþjóðlegu tónskáldaþingi útvarpsstöðva á Rostrum í París árið 2006. |