Sumartónleikar í Skálholti
  • Sumartónleikar 2021
    • Staðartónskáld
    • Flytjendur
  • Um Sumartónleika
    • Um Sumartónleika
    • Listrænir stjórnendur og framkvæmdastjórar
    • Helga Ingólfsdóttir
    • Staðartónskáld
    • Hollvinafélag
    • Sumartónleikar 2020 >
      • Staðartónskáld
      • Flytjendur >
        • KIMI
        • Cantoque Ensemble og Steinar Logi Helgason
        • Aulos Ensemble
        • Minningardagskrá tileinkuð Jaap Schröder og Helgu Ingólfsdóttur
        • Cauda Collective
        • Bachelsi
        • Guðbjörg Hilmarsdóttir og Kári Þormar
        • Heiða Árnadóttir og Tinna Þorsteinsdóttir
      • Taka frá sæti
  • Styrktu hátíðina
  • English

Staðartónskáld 2021

Við kynnum með stolti staðartónskáldin okkar þau Hauk Tómasson og Eygló Viborg Höskuldsdóttir. Haukur hefur getið sér gott orð bæði á Íslandi og erlendis fyrir tónlist sína. Eygló er að hefja sinn feril en hefur einnig getið sér gott orð á Íslandi og í Bandaríkjunum. Þau eru fulltrúar tveggja mismunandi kynslóða íslenskra tónskálda og við hlökkum mikið til að hlusta á áhugaverða og spennandi tónlist þeirra í Skálholti 2021.

Haukur Tómasson

Haukur Tómasson er fæddur í Reykjavík árið 1960. Hann stundaði tónlistarnám í Reykjavík, Köln, Amsterdam og lauk mastersprófi frá Kaliforníuháskóla í San Diego. Meðal verka hans má nefna óperuna Fjórða söng Guðrúnar, 9 hljómsveitarverk, 8 einleikskonserta og ýmsa kammer- og kórtónlist. Tónlist hans einkennist oft af miklum rytmískum krafti og fjölbreytni í hljóðfærasamsetningum.

​Haukur hefur hlotið ýmsar viðurkenningar svo sem tvívegis verðlaun í tónverkasamkeppni RÚV, Bjartsýnisverðlaun Bröste 1996 og þrívegis Íslensku tónlistarverðlaunin. Haukur fékk tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 2004 fyrir óperuna Fjórði söngur Guðrúnar. Haukur hefur fengið pantanir frá Los Angeles Philharmonic, NDR Elbphilharmonie Orchester, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Haustinu í Varsjá, Orkester Norden, OperaNord, Listahátíð í Reykjavík, Kammersveit Reykjavíkur, sinfóníuhljómsveitinn í Stavanger, Caput og fleirum. 
​

Heimasiða
Picture
Mynd: Hulda Kristín Hauksdóttir

Picture
Mynd: Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir

Eygló Höskuldsdóttir Viborg


​Eygló stundaði grunnnám í tónsmíðum við Berklee College of Music og lauk þaðan Bachelor gráðu árið 2017. Ári síðar hlaut hún Fulbright styrk til að hefa Meistaranám í tónsmíðum við New York Universitu og Julia Wolfe og Robert Honstein voru hennar aðalkennarar. Á vordögum 2019 var hún valin úr hópi umsækjenda til að taka þátt í Yrkju V, samvinnuverkefni Íslenskrar tónverkamiðstöðvar og Sinfóníuhljómsveit Íslands, og tæpu ári síðar, á myrkum músíkdögum 2020, frumflutti sveitin verkið hennar „Lo and Behold“.

​Auk Íslands hafa verkin hennar verið flutt í Boston, New York og Tokyo. Eygló hefur einnig verið áberandi í kórastarfi og söng lengst af í Gradualekór Langholtskirkju og Graduale Nobili og söng meðal annars á Biophiliu plötu Bjarkar Guðmundsdóttur og fór í kjölfar útgáfunnar í tónleikaferðalag með henni.
Soundcloud
Facebook
Instagram
Sumartónleikar í Skálholtskirkju
Skálholti, 801 Selfoss
​
sumartonleikar.skalholt[að]gmail.com
© COPYRIGHT 2019. ALL RIGHTS RESERVED. Design by Mos.
  • Sumartónleikar 2021
    • Staðartónskáld
    • Flytjendur
  • Um Sumartónleika
    • Um Sumartónleika
    • Listrænir stjórnendur og framkvæmdastjórar
    • Helga Ingólfsdóttir
    • Staðartónskáld
    • Hollvinafélag
    • Sumartónleikar 2020 >
      • Staðartónskáld
      • Flytjendur >
        • KIMI
        • Cantoque Ensemble og Steinar Logi Helgason
        • Aulos Ensemble
        • Minningardagskrá tileinkuð Jaap Schröder og Helgu Ingólfsdóttur
        • Cauda Collective
        • Bachelsi
        • Guðbjörg Hilmarsdóttir og Kári Þormar
        • Heiða Árnadóttir og Tinna Þorsteinsdóttir
      • Taka frá sæti
  • Styrktu hátíðina
  • English