Dagskrá birt með fyrirvara um breytingar.
Vika 1Sunnudagur 29. júní
20:00 Latínóbarokk Sænski hópurinn Ensemble Villancico leikur og dansar við barokktónlist frá Ekvador og Suður-Ameríku. Stjórnandi: Peter Pontvik. Mánudagur 30. júní 14:00 Barokk í Suður-Ameríku Peter Pontvik fjallar um suður-ameríska barokktónlist. 15:30 Masterklass - Ann Wallström 20:00 Hljóða hvarf Nordic Affect flytur samtímatónlist sem skrifuð hefur verið fyrir hópinn. Verk eftir m.a. Önnu Þorvaldsdóttur, Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur og Kristínu Þóru Haraldsdóttur. Þriðjudagur 1. júlí 14:00-16:00 Masterklass - Jaap Schröder 20:00 Holdgerving þekkingar Johannes Boer, deildarstjóri “Early Music” deildarinnar í Konunglega tónlistarháskólanum í Den Haag, fjallar um hlutverk þekkingar, sköpunargleði og innsæis í heimi upprunalegs flutnings tónlistar. Miðvikudagur 2. júlí 14:00 Öll lifandi tónlist.... Listrænn stjórnandi kammerhópsins Nordic Affect, Halla Steinunn Stefánsdóttir fjallar um starf hópsins og samstarf við samtímatónskáld. 20:00 Frumkvöðlar á fertugasta sumri - Ann Ann Wallström, Sigurður Halldórsson og Guðrún Óskarsdóttir leika verk eftir Bach, Elisabeth Jacquet de la Guerre, Roman, Händel og Corelli. Tónleikarnir eru styrktir af Minningarsjóði Helgu Ingólfsdóttur, en í ár eru liðin 5 ár frá andláti hennar. Allur ágóði tónleikanna rennur í minningarsjóðinn. Fimmtudagur 3. júlí 20:00 EAR-ly Úrslitakeppni Third Nordic Young Early Music Competition 2014. Þátttakendur eru sænsku hóparnir Ensemble Flautino, Bastard Barock og finnska dúóið Marini-Ollberg Duo. Föstudagur 4. júlí 20:00 Frumkvöðlar á fertugasta sumri - Jaap Skálholtskvartettinn flytur tríó fyrir fiðlu, víólu og selló eftir Haydn og Schubert, ásamt strengjakvartett op. 76 no. 6 eftir Haydn. Laugardagur 5. júlí 15:00 Frumkvöðlar á fertugasta sumri - Ann Ann Wallström, Sigurður Halldórsson og Guðrún Óskarsdóttir leika verk eftir Bach, Elisabeth Jacquet de la Guerre, Roman, Händel og Corelli. Tónleikar endurteknir frá miðvikudegi 3. júlí. Tónleikarnir eru styrktir af Minningarsjóði Helgu Ingólfsdóttur, en í ár eru liðin 5 ár frá andláti hennar. Allur ágóði tónleikanna rennur í minningarsjóðinn. 17:00 Frumkvöðlar á fertugasta sumri - Jaap Skálholtskvartettinn flytur strengjatríó eftir Boccherini og strengjakvintetta eftir Boccherini og Mozart. Gestur: Hildigunnur Halldórsdóttir, fiðla/víóla. Sunnudagur 6. júlí Dagurinn er tileinkaður Þorkeli Sigurbjörnssyni og samstarfsverkefni Sumartónleika og LHÍ um rannsóknir á tónlist hans. 14:00 Söngverk Þorkels Nemendur úr LHÍ flytja erindi um söngverk Þorkels Sigurbjörnssonar. Erindið er hluti af rannsóknarverkefni þeirra undir leiðsögn Hróðmars I Sigurbjörnssonar sem styrkt er af Nýsköpunarsjóði Námsmanna. 15:00 Syngið Drottni nýjan söng! Nemendur úr Listaháskóla Íslands flytja söngverk eftir Þorkel Sigurbjörnsson. 17:00 Guðsþjónusta Með tónlist eftir Þorkel Sigurbjörnsson. |
Vika 2Fimmtudagur 10. júlí
16:00 Sumartónleikar í Skálholti í 40 ár Hollvinafélag Sumartónleika í Skálholti boðar til málþings um stöðu og framtíð Sumartónleika í Skálholtskirkju, í Skálholtsskóla. Allir velkomnir. 20:00 Nýbylgjan Kammerhópurinn Nordic Affect flytur verk eftir nokkra af byltingarsinnum franskrar barokktónlistar, Leclair, Blavet, Rameau o.fl. Laugardagur 12. júlí 14:00 Samið fyrir Melangell, engil, dýrling og dulspeking Hanne Tofte Jespersen fjallar um tónsmíð sína The Testimony of Melangell. 15:00 The Testimony of Melangell Music for the Mysteries, Kammerkór Suðurlands og María Ellingsen leikkona flytja verk danska tónskáldsins Hanne Tofte Jespersen, 17:00 Nýbylgjan Kammerhópurinn Nordic Affect flytur verk eftir nokkra af byltingarsinnum franskrar barokktónlistar, Leclair, Blavet, Rameau o.fl. Dagskrá endurtekin frá fimmtudegi 10. júlí. Sunnudagur 13. júlí 15:00 The Testimony of Melangell Music for the Mysteries, Kammerkór Suðurlands og María Ellingsen leikkona flytja verk danska tónskáldsins Hanne Tofte Jespersen, Dagskrá endurtekin frá laugardegi 12. júlí. 17:00 Guðsþjónusta Með tónlist frá Sumartónleikum í Skálholtskirkju. |
Vika 3Skálholtshátíð
Fimmtudagur 17. júlí 20:00 Sól eg sá Lena Willemark og Voces Thules flytja íslenska miðaldatónlist og sænska þjóðlagatónlist með spunaívafi frá Älvdalen. Föstudagur 18. júlí 20:00 Frumkvöðlar á fertugasta sumri - Bachsveitin Bachsveitin í Skálholti flytur strengjatónlist frá hátindi barokktímans. Leiðari: Peter Spissky. Einleikari: Elfa Rún Kristinsdóttir. Laugardagur 19. júlí 16:00 Frumkvöðlar á fertugasta sumri - Bachsveitin Bachsveitin í Skálholti flytur strengjatónlist og kantötur. Leiðari: Peter Spissky. Altsöngkona: Jóhanna Halldórsdóttir. 21:00 Frumkvöðlar á fertugasta sumri - Bachsveitin Bachsveitin í Skálholti flytur strengjatónlist frá hátindi barokktímans. Leiðari: Peter Spissky. Einleikari: Elfa Rún Kristinsdóttir. Sunnudagur 20. júlí 11:00 Orgeltónleikar Jón Bjarnason 14:00 Hátíðarmessa 16:15 Hátíðarsamkoma |
Vika 4Fimmtudagur 24. júlí
20:00 Tristía CAPUT flytur tónlist eftir Hafliða Hallgrímsson, Oliver Kentish og fleiri. Laugardagur 26. júlí 14:00 Mótunarárin í Eistlandi Páll Ragnar Pálsson segir frá mótunarárum sínum í Eistlandi og varpar ljósi á tilurð verkanna sem flutt verða kl. 15:00. 15:00 Frumkvöðlar á fertugasta sumri - Hljómeyki Ljóðaljóðin Hljómeyki frumflytur Ljóðaljóðin, eftir staðartónskáld sumarsins, Pál Ragnar Pálsson, ásamt fleiri verka hans. Einsöngvarar: Tui Hirv og Hafsteinn Þórólfsson. Stjórnandi: Marta Guðrún Halldórsdóttir. 17:00 Tristía CAPUT flytur tónlist eftir Hafliða Hallgrímsson og fleiri. Dagskrá endurtekin frá fimmtudegi 24. júlí. Sunnudagur 27. júlí 15:00 Frumkvöðlar á fertugasta sumri - Hljómeyki Ljóðaljóðin Hljómeyki frumflytur Ljóðaljóðin, eftir staðartónskáld sumarsins, Pál Ragnar Pálsson, ásamt fleiri verka hans. Einsöngvarar: Tui Hirv og Hafsteinn Þórólfsson. Stjórnandi: Marta Guðrún Halldórsdóttir. Dagskrá endurtekin frá laugardegi 26. júlí. 17:00 Guðsþjónusta Með tónlist frá Sumartónleikum í Skálholtskirkju. |
Vika 5Fimmtudagur 31. júlí
20:00 Tveggja manna tal Semballinn og pikkolósellóið ræða saman, stíga dans og glíma. Allt er leyfilegt. Allt sem þeim kann að liggja á hjarta fær að hljóma í gegnum verk meistaranna Ortiz, Selma og Cabezòn. Corpo di Strumenti: Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir pikkolóselló og Brice Sailly semball. Laugardagur 2. ágúst 14:00 Sónötur og partítur Bachs Patrick Bismuth fjallar um sónötur og partítur Bachs og skoðar þær í samhengi við fjölradda tónlist þess tíma fyrir einleiksfiðlu án bassa. 15:00 Djúkbox Patrick Bismuth er ekki allur þar sem hann er séður. Í erminni geymir hann fiðlupartítur og -sónötur Bachs með tölu, en tónleikagestir fá að panta "lög" á fóninn. Óútreiknanlegir tónleikar í boði ómótstæðilegs tónlistarmanns. 17:00 Cordes Vocales eða röddin í strengnum Hvar er rödd hljóðfæraleikarans? Corpo di Strumenti kafar í sjó madrigalanna í leit að rödd og tóni, svo að hljóðfærin megi syngja. Úr verður hljóðfæraveisla frá sautjándu öld. Verk eftir Bassano, Castello og fleiri. Corpo di Strumenti: Hélène Houzel fiðla, Patrick Bismuth fiðla, Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir pikkolóselló, Mathurin Matharel fiðlubassi, Brice Sailly semball Sunnudagur 3. ágúst 15:00 Cordes Vocales eða röddin í strengnum Hvar er rödd hljóðfæraleikarans? Corpo di Strumenti kafar í sjó madrigalanna í leit að rödd og hreinum tóni, svo að hljóðfærin megi syngja. Úr verður hljóðfæraveisla frá sautjándu öld. Dagskrá endurtekin frá laugardegi 2. ágúst. 17:00 Guðsþjónusta Með tónlist frá Sumartónleikum í Skálholtskirkju. |