Camerata Öresund var stofnað árið 2010 og inniheldur nýjustu kynslóð barokkspilara á Öresund-svæðinu sem sameinar Danmörku og Svíþjóð. Þau hafa öll lært í tónlistarháskólum svæðisins, eða flutt þangað til að hefja feril sinn sem tónlistarmenn í þessu spennandi tónlistarumhverfi. Camerata Öresund er þekkt fyrir líflegan stíl sinn, kraumandi áhuga og virkt samtal við áheyrendur.
Allir meðlimir eru sérhæfðir í sögulegri spilatækni og leiðari þeirra er fiðluleikarinn og barokksérfræðingurinn Peter Spissky.
Camerata Öresund hefur haldið fjölda konserta í Danmörku, Íslandi og Svíþjóð auk fleiri landa, og er fastur gestur Næstved Early music Festival, einnar stærstu sinnar tegundar í Evrópu.
Í febrúar 2016 fluttu þau tónleikaröðina „Shakespeare in Love“ í tónleikahúsinu Diamanten í Kaupmannahöfn, og í ágúst síðastliðnum spiluðu þau undir heimsfræga stjórnandanum Jordi Savall á Næstved Early music Festival.
Framundan eru tónleikar með þremur fiðlukonsertum sem eru ný-uppgötvaðir, eftir Christian Ræhs frá því snemma á 18. öld, og fjöldamargir tónleikar í desember, þar sem á dagskrá verður meðal annars stórvirkið Messías eftir Händel, án stjórnanda.
www.facebook.com/camerataoresund
www.camerataoresund.com