Biber & SchmelzerElfa Rún leikur sónötur frá 17. öld eftir tónskáldin og fiðluvirtóúsana Biber og Schmelzer, ásamt nokkrum minna þekktum samtímamönnum þeirra. Schmelzer var fyrsta þýskumælandi tónskáldið sem gaf út flokk af sónötum fyrir fiðlu og fylgirödd og hafði mikil áhrif á Biber, en þeir tveir voru taldir einir bestu fiðluleikarar og tónskáld síns tíma. Með Elfu Rún leika orgelleikarinn Sabine Erdmann og teorbuleikarinn Magnus Andersson. Seinna á árinu mun koma út geisladiskur með sömu verkunum í flutningi þessara listamanna, gefinn út af Solaire Records.
|