Barokkbandið Brák

Barokkbandið Brák er skipað hópi ungs fólks sem hefur sérhæft sig að hluta til í upprunaspilamennsku í námi erlendis. Brák hefur verið starfrækt frá árinu 2014, en bandið var stofnað af fiðluleikurunum Laufeyju Jensdóttur, Guðbjörgu Hlín Guðmundsdóttur og Elfu Rún Kristinsdóttur sem er jafnframt listrænn stjórnandi. Barokkbandið hélt sína fyrstu tónleika á Sumartónleikum í Skálholti í júlí 2015. Sveitin hefur fengið til liðs við sig jafnt íslenska og erlenda hljóðfæraleikara sem allir spila á upprunaleg hljóðfæri frá barokk og endurreisnartímanum. Barokkbandið Brák hefur fengið afar góðar viðtökur á tónleikum sínum hvarvetna.
Brák leitast eftir að færa áheyrendum sem fjölbreyttasta mynd af endurreisnar og barokktónlist en sú tónlist spannar langt tímabil í tónlistarsögunni. Á síðustu árum hefur orðið mikil vitundarvakning varðandi svonefndan upprunaflutningi og keppast nú hljóðfæraleikarar um allan heim við að tileinka sér upplýstan flutning á verkum barokktímans til þess að komast nær tíðaranda þessa tímabils. Brákin lætur ekki sitt eftir liggja í þeim efnum og miðar að því að flytja íslenskum áheyrendum þessa tegund tónlistar á sem mest lifandi og innblásinn hátt.
Barokkbandið Brák:
Elfa Rún Kristinsdóttir, fiðla
Laufey Jensdóttir, fiðla
Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, fiðla
Sólveig Vaka Eyþórsdóttir, fiðla
Guðrún Hrund Harðardóttir, víóla
Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, selló
Borgar Magnason, kontrabassi
Magnus Andersson, teorba
Sabine Erdmann, semball